
Gjaldskrá
Sjúkraþjálfarar Eflingar starfa samkvæmt starfsheildarsamningi við sjúkratryggingar Íslands sem samþykktur var í maí 2024 og tók ný gjaldskrá samkvæmt honum gildi 1. október 2024. Nánari upplýsingar um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga og gjaldskrána má finna hér:
Greiðsluþátttaka
Forfallagjald
Ef ekki er mætt í bókaðan tíma og hann ekki afboðaður þá leggst forfallagjald á tímabókunina.
Fyrir 30 mín almenna meðferð: 4.500 kr
Fyrir 60 mín skoðun 7.500
Afboða þarf með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara. Ef um veikindi er að ræða þarf afboðun að berast fyrir kl. 9:00 á veikindadegi.
Hægt er að afbóka með því að senda tölvupóst á netfangið efling@eflingehf.is eða hringja í síma 461-2223.
Vinnuslys
Sjúkratryggingar Íslands greiða að fullu fyrir meðferð eftir vinnuslys, að því gefnu að slysatilkynning og áverkavottorð liggi fyrir. Hafi sjúklingur merkt við slysatryggingarákvæði á skattaskýrslu þarf hann ekki að greiða eigin hlut vegna sjúkraþjálfunar eftir slys við heimilisstörf.
Sjúkraþjálfun eftir bílslys
Tryggingafélag viðkomandi bifreiðar endurgreiðir hlut sjúklings vegna meðferðar eftir bílslys. Vinsamlegast hafðu samband við fulltrúa tryggingafélagsins þíns til að kynna þér réttindi þín.
Sjúkrasjóðir stéttarfélaga
Mörg stéttarfélög endurgreiða að hluta eða að fullu fyrir hluta sjúklings. Við hvetjum þig til að kynna þér réttindi þín hjá viðeigandi stéttarfélagi.
Æfingar í sal
Tækjasalur er opinn kl. 8–16 alla virka daga.
Hægt er að kaupa kort í salina í Hafnarstræti 97 og kostar 10 tíma kort 7.500 kr.
