Fara í efni




Þjónusta


Sjúkraþjálfarar í Eflingu bjóða upp á alla almenna sjúkraþjálfun. Fólk með ýmis stoðkerfisvandamál leitar oft hjálpar hjá sjúkraþjálfurum Eflingar. Einstaklingar sem eru að ná sér eftir beinbrot, liðskiptaaðgerðir og ýmsar aðrar aðgerðir á stoðkerfi eru einnig algengir viðskiptavinir Eflingar. Íþróttaslys og álagseinkenni ýmiskonar hjá íþróttafólki þarfnast skjótra úrræða og hafa sjúkraþjálfarar Eflingar veitt íþróttafólki eins góða og faglega þjónustu og kostur er. Við sinnum konum með vandamál á meðgöngu og eftir fæðingu auk kvenna með vandamál tengd grindarbotni og mjaðmagrind auk kvenna sem hafa þurft að fara í brjóstnám eða eru að glíma við sogæðabjúg. Einnig eru börn og eldra fólk meðal viðskiptavina Eflingar.


Við reynum að hafa sem breiðasta og besta þjónustu og hafa sjúkraþjálfarar reynt að sérhæfa sig á mörgum sviðum og verið duglegir að sækja námskeið til að viðhalda og bæta þekkingu sína.

Auk allrar almennrar sjúkraþjálfunar sinnum við einnig:

  • Íþróttasjúkraþjálfun
  • Manual Therapy (Liðfræði)
  • Kvennsjúkraþjálfun
  • Barnasjúkraþjálfun
  • Sjúkraþjálfun aldraðra
  • Sjúkraþjálfun eftir aðgerðir og slys
  • Sogæðameðferð
  • Heimasjúkraþjálfun
  • Hópþjálfun

Auk þess bjóðum við upp á:

  • Æfingakort í tækjasal sem sjúkraþjálfari setur upp
  • Úttekt á vinnustöðum og námsskeið um líkamsbeitingu
  • Fræðslufyrirlestra og ráðgjöf
  • Ýmsar mælingar eins og mjólkursýrupróf, þolpróf, styrktarmælingar o.fl.
  • Hlaupagreiningar

Fræðslupakkar í boði:

  • Bakskóli.
  • Grindarbotnsþjálfun.
  • Úttekt á vinnustöðum
  • Leiðbeiningar um góða líkamsbeitingu við tölvuvinnu.
  • Leiðbeiningar um góða líkamsbeitingu.
  • Fræðslu um forvarnir í íþróttum.

Verslun

Efling hefur söluumboð fyrir ýmsar vörur fyrir sjúkraþjálfara, til sjálfshjálpar gegn verkjum og til að gera viðskiptavinum sínum kleift að stunda æfingar heima hjá sér. Má þar nefna: Nuddstafi, nuddrúllur, bakbelti, hlífar, teip, æfingateygjur, æfingabolta, kælipoka o.fl.