Fara í efni

Kvennaleikfimi

Kvennaleikfimi

Kvennaleikfimi er mjúk alhliða þjálfun fyrir konur. Í tímunum er lögð áhersla á að auk vöðvastyrk og vöðvastjórn, liðleika, úthald, samhæfingu og jafnvægi.


Um hópinn

Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á þjálfun kvenna. Kvennaleikfimin hentar konum á öllum lífsskeiðum — ungum sem eldri. Áhersla er lögð á góðar og árangursríkar æfingar sem henta konum. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og ánægju í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í góðu umhverfi. Tímarnir eru á 4. hæð í Hafnarstræti 97 á þriðju- og fimmtudögum kl. 11.


Markmið þjálfunarinnar

  • Bæta og viðhalda styrk og hreyfanleka — markvissar æfingar til að styrkja og samhæfa vöðvahópa
  • Bæta hreyfistjórn og samhæfingu
  • Auka liðleika og úthald
  • Bæta jafnvægi
  • Fræðsla

Hægt er að hafa samband við afgreiðslu Eflingar fyrir frekari upplýsingar og skráningu.