Fara í efni







Efling sjúkraþjálfun

Fagmennska - velferð - virðing

Markmið fyrirtækisins er að veita faglega og metnaðarfulla þjónustu í góðu starfsumhverfi þar sem við leggjum áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð með áherslu á virka endurhæfingu til að hjálpa fólki að taka aukna ábyrgð til að bæta lífsgæði og eigin líðan.

Við höfum gildin okkar að leiðarljósi en þau eru: Fagmennska, velferð og virðing.

Efling rekur tvær stofur á Akureyri, annars vegar í Hafnarstræti 97 og hins vegar í Kaupangi við Mýrarveg. Afgreiðslan okkar í Hafnarstræti 97 á 3. hæð.

Hjá okkur starfa 20 sjúkraþjálfarar sem sinna allir hefðbundinni sjúkraþjálfun en hafa einnig sérhæft sig í stoðkerfisvandamálum, íþróttameiðslum, kvennaheilsu, sogæðameðferð, endurhæfingu eftir gerviliðaaðgerðir, endurhæfingu eftir axla- og hnéaðgerðir, sjúkraþjálfun barna auk þess að vera með nálastungur og bjóða upp á ýmsar mælingar s.s. þrekpróf, hlaupagreiningar og mjólkursýrumælingar auk ýmissa fræðsluerinda og vinnastaðaúttekta.

Íþróttasjúkraþjálfararnir eru í góðum tengslum við íþróttahreyfingu og félög í bænum og hafa tekið að sér landsliðsverkefni.


Sagan:

Efling sjúkraþjálfun ehf var stofnuð í des 1995 og tók til starfa í apríl 1996. Það voru þau Einar Einarsson, Sigrún Jónsdóttir og Stefán Ólafsson sem stofnuðu Eflingu. Efling hefur því sinnt sjúkraþjálfun í þrjá áratugi. Í fyrstu var stofan smá í sniðum með 5 starfsmenn og var rekin í samstarfi við nokkra sérgreinalækna á 3. hæð í Hafnarstræti 97 á Akureyri. Síðar tók Efling alfarið við húsnæðinu og fjölgaði þá sjúkraþjálfurum. Árið 2018 stækkaði stöðin aftur þegar 4. hæðin var tekin í notkun og stækkaði síðan enn meira með tilkomu Kaupangs í janúar 2022.

Eigendur/hluthafar eru í dag 11. Þeir eru: Árni Björn Þórarinsson, Ásta Þorsteinsdóttir, Elín Rós Jónasdóttir, Hannes Bjarni Hannesson, Helgi Steinar Andrésson, Miguel Mateo Castrillo, Rósa Tryggvadóttir, Soffía Einarsdóttir, Stefán Ólafsson, Sævar Þór Sævarsson og Þórhalldur Guðmundsson.

Í dag er stöðin rekin í um 1300 fm húsnæði í Hafnarstræti og í Kaupangi og þar starfa að jafnaði 24.

Framkvæmdastóri er Ásta Þorsteinsdóttir og hefur hún gegnt því starfi frá 1. janúar 2017.