
Stoðkerfisefling
Stoðkerfisefling
Stoðkerfið — sem tekur til beina, vöðva, liðamóta, sina og bandvefs — sér um að halda líkamanum uppi, vernda líffæri og gerir okkur kleift að hreyfa okkur. Vandamál í stoðkerfinu geta komið fram á margan hátt; sem verkir, stirðleiki, skert hreyfigeta eða máttleysi, og hafa oft áhrif á daglegt líf og lífsgæði. Stoðkerfisefling er hóptími sem eflir stoðkerfið í heild sinni og tekur á öllum þeim þáttum sem þarf til að halda stoðkerfinu góðu.
Um hópinn
Stoðkerfisefling fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á stoðkerfinu og þjálfun þess. Áhersla er lögð á faglega og árangursríka þjálfun í góðu umhverfi. Æfingar eru aðlagaðar að getu og þörfum þátttakenda. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og ánægju í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi.
Tímarnir eru á 4. hæð í Hafnarstræti 97 á mánu- og miðvikudögum kl. 8.
Markmið þjálfunarinnar
- Bæta og viðhalda vöðvastyrk
- Bæta jafnvægi og samhæfingu
- Styrkja bein
- Auka úthald
- Bæta hreyfanleika og liðleika
Fyrir hvern er hópurinn
Alla 18 ára og eldri sem eru að glíma við stoðkerfisvanda eða vilja fyrirbyggja hann og viðhalda góðu stoðkerfi.
