
Slitgigtarhópur
Slitgigtarþjálfun
Slitgigt er einn algengasti liðsjúkdómurinn og einkennist af niðurbroti brjósks í liðum sem leiðir til verkja, stirðleika og skertrar hreyfigetu. Sjúkdómurinn hefur áhrif á lífsgæði og getur dregið verulega úr þeim. Hjá Eflingu sjúkraþjálfun bjóðum við upp á sérhæfða þjálfun og meðferð sem miðar að því að draga úr einkennum slitgigtar, bæta hreyfigetu og styrkja þá vöðva sem styðja við liðina.
Hvað felst í slitgigtarþjálfun?
Markviss þjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að meðhöndla slitgigt og hafa vísindalegar rannsóknir ítrekað sýnt fram á jákvæð áhrif hennar á bæði verki og hreyfigetu. Meðferðin er einstaklingsmiðuð og tekur mið af líðan, getu og markmiðum hvers skjólstæðings.
Þjálfunin byggir á:
- Styrktarþjálfun — uppbygging vöðvastyrks í kringum liðina til að létta álag og auka stöðugleika
- Liðleikaþjálfun — bæta eða viðhalda hreyfigetu liða
- Jafnvægis- og samhæfingaþjálfun — til að minnka áhættu á bytlu og bæta hreyfistjórn
- Fræðsla og leiðbeiningar — um sjálfsþjálfun, hreyfimynstur og líkamsbeitingu í daglegu lífi
Um hópinn
Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á slitgigt og endurhæfingu fólks með slitgigt. Áhersla er á öruggar og árangursríkar æfingar sem eru aðlagaðar að getu og þörfum hvers og eins. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og gleði í huga auk þess sem þeir skapa jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi. Tímarnir fara fram á 4. hæð í Hafnarstræti 97 á þriðju- og föstudögum kl. 12:05
Fyrir hvern er þjálfunin?
Slitgigtarhópurinn hentar einstaklingum með slitgigt í hné eða mjöðm eða haf farið í liðskipti á hné eða mjöðm. Hann hentar einstaklingum á öllum stigum sjúkdómsins — hvort sem einkenni eru væg eða umtalsverð. Ef gripið er snemma inn í framgang sjúkdómsins þá getur það hægt verulega á framgangi sjúkdómsins og dregið úr þörf fyrir lyfjameðferð eða skurðaðgerð til frambúðar.
Hægt er að hafa samband við afgreiðslu Eflingar fyrir frekari upplýsingar og skráningu.
