Fara í efni

Heilsuefling 65+

Heilsuefling 65+

Heilsuefling 65+ eru hóptímar ætlaðir einstaklingum 65 ára og eldri. Áhersla er lögð á að auka styrk, jafnvægi, úthald og liðleika. Hreyfing er ein mikilvægasta forvörn gegn heilsibresti á efri árum og rannsóknir sýna að markviss þjálfun getur bætt þessa þætti auk þess að hafa góð áhrif á andlega líðan — óháð aldri eða líkamlegri getu.


Um hópinn

Þjálfunin fer fram undir leiðsögn sjúkraþjálfara með góða þekkingu á þjálfun og endurhæfingu eldra fólks. Áhersla er lögð á öruggar og árangursríkar æfingar sem eru aðlagaðar að getu og þörfum hvers þátttakanda. Hóptímarnir eru byggðir upp með velferð, öryggi og gleði í huga auk þess sem þeir skapar jákvæða félagslega samveru í hvetjandi umhverfi. Tímarnir eru í Kaupangi á þriðju- og fimmtudögum kl. 15:30 og 16:35.


Markmið þjálfunarinnar

  • Bæta og viðhalda vöðvastyrk og hreyfanleika
  • Bæta jafnvægi og samhæfingu til að draga úr byltuhættu
  • Styrkja bein og minnka líkur á beinþynningu
  • Auka úthald
  • Auka sjálfstæði og lífsgæði í daglegum athöfnum
  • Fyrirbyggja eða hægja á framgangi algengra aldurstengdra sjúkdóma


Fyrir hvern er hópurinn?

Heilsuefling 65+ hentar einstaklingum sem eru komnir yfir sextugt — hvort sem þátttakandi er líkamlega virkur og vill viðhalda heilsu sinni eða er að hefja þjálfun að nýju eftir veikindi, meiðsli eða skurðaðgerð. Þjálfunin er sniðin að hverjum og einum og tekur mið af líðan, getu og markmiðum þátttakanda.

Við hvetjum eldra fólk og aðstandendur þeirra til að hafa samband við Eflingu sjúkraþjálfun til að fá frekari upplýsingar um hópana.